Fimleikar 2014 (2)
Sumarnámskeið Fimleikadeildar Selfoss hefjast þriðjudaginn 10. júní. Námskeiðin eru viku í senn og er kennt virka daga frá 13:00-15:30. Kennari á námskeiðinu er Þyrí Imsland fimleikaþjálfari og grunnskólakennaranemi. Námskeiðin eru fyrir börn fædd 2008-2004 jafnt stráka sem stelpur.
Á námskeiðinu er farið í grunnæfingar í fimleikum, liðleika- og styrktarþjálfun og leiki.
Skráning fer fram inná selfoss.felog.is sem er skráningar- og greiðslusíða Umf Selfoss.
Þessar vikur eru í boði:
10. - 13. júní
16. - 20. júní
23. - 27. júní
5. - 8. ágúst
11. – 15. ágúst
Nánari upplýsingar má fá á netfanginu fimleikarselfoss@simnet.is
Hlökkum til að sjá ykkur í fjörinu í sumar.