Merki HSK - Logo
Það voru 98 keppendur voru skráðir til leiks á Vormót HSK í frjálsum íþróttum sem haldið var á Selfossvelli miðvikudagskvöldið 30. maí sl. Mótið átti upphaflega að fara fram 19. maí en var frestað vegna veðurs. Mótinu var svo aftur frestað 29. maí, en mikið rok var á vellinum og ljóst að hlaup og stökk hefðu ekki verið lögleg. Mótið fór svo fram í ágætu vorveðri, en reyndar voru ekki öll hlaup og stökk lögleg vegna of mikils vinds, sem má vera allt að 2 metrar á sekúndu.
Tvö HSK met voru sett á mótinu, en Hildur Helga Einarsdóttir úr Umf. Selfoss tvíbætti HSK metið í spjótkasti í flokki 16 – 17 ára með 500 gr. spjóti. Hún kastaði í fyrstu tilraun 41,90 metra og bætti þar emð ársgamalt met Helgu Margrétar Óskarsdóttur um rúma tvo metra. Hún setti svo annað met síðar í kastseríunni, þegar hún kastaði 42,13 metra. Hildur vann til gullverðlauna í spjótkastinu.
Keppendur af sambandssvæði HSK unnu fimm aðrar greinar á mótinu, en boðhlaupsveitir Selfoss unnu bæði í karla- og kvennaflokki. Thelma Björk Einarsdóttir Selfossi vann tvær greinar í kvennaflokki, kastaði sleggjunni 39,44 metra og kúlunni 12,35 metra. Þá sigraði Ingibjörg Hugrún Jóhannesdóttir Selfossi í 800 m hlaupi kvenna á 2;59,89 mín.
Þess má geta að Sindri Freyr Seim Sigurðsson Umf. Heklu hljóp á 11,74 sek. í 100 metra hlaupi, sem er betri tími en gildandi HSK met í hans flokki, en meðvindur var aðeins of mikill.
Heildarúrslit eru á www.fri.is og myndir frá mótinu má sjá á www.hsk.is.
Úr fréttabréfi HSK