Zoran Ivic
Hinn reyndi þjálfari Zoran Ivic mun ganga til liðs við handknattleiksdeild Selfoss á komandi tímabili og meðal annars starfa í þjálfarateymi kvennaliðs félagsins.
Að sögn Magnúsar Matthíassonar, formanns deildarinnar, eru viðræður við Ivic á lokastigi og verður samningur undirritaður á næstu dögum. Magnús segir komu Ivic á Selfoss mikinn feng fyrir félagið.
Ivic hefur starfað sem handknattleiksþjálfari í rúma tvo áratugi, aðallega í Serbíu. Hann hefur komið að þjálfun allra karlalandsliða þjóðarinnar, frá unglingalandsliðunum og upp til A-landsliðsins auk þess sem hann var aðalþjálfari kvennalandsliðs Serbíu- og Svartfjallalands um tíma.
Auk þess hefur hann þjálfað öll bestu félagslið Serbíu bæði karla og kvenna. Þar má helst nefna Rauðu Stjörnuna og Partizan í Belgrad auk Budocnost sem er stærsta kvennalið Serbíu.
Ivic þekkir til starfsins á Selfossi en hann hefur í tvígang komið á Selfoss og verið gestaþjálfari í handknattleiksakademíu FSu og Umf. Selfoss.
Kvennalið Selfoss varð í 7. sæti í Olís-deildinni á síðasta tímabili undir stjórn Sebastians Alexanderssonar. Sebastian verður áfram aðalþjálfari liðsins en Ivic verður honum til aðstoðar. Auk þess mun hann kenna í handknattleiksakademíunni og koma að þjálfun yngri flokka.
---
Ljósmynd: Umf. Selfoss/Gissur Jónsson