IMG_9567
Íslandsmótið í hópfimleikum fór fram í Versölum í Kópavogi 26. og 27.apríl 2013. Selfoss átti tvö lið í keppninni en það var blandað lið Selfoss og kvennalið Selfoss. Keppni í fjölþraut fór fram á föstudegi 26.apríl og höfnuðu stelpurnar í þriðja sæti sem verður að teljast mjög góður árangur sem og blandað lið Selfoss hafnaði í 2.sæti á eftir liði Ármanns.
Laugardaginn 27.apríl voru svo úrslit á áhöldum en þrjú efstu liðin á hverju áhaldi komast áfram til úrslita daginn eftir Blandað lið Selfoss komst áfram á öllum áhöldum þar sem aðeins tvö lið kepptu en kvennalið Selfoss komst verðskuldað áfram á gólfi. Selfsossstelpur voru í 2.sæti fyrir úrslitin en náðu ekki eins góðum mómentum seinni daginn og enduðu í 3.sæti á gólfi í úrslitum. Kynslóðaskipti eiga sér stað í kvennaliðinu en veturinn var góð reynsla inn í komandi tímabil. Mixlið Selfoss gerði sér lítið fyrir og sigraði gólfæfingarnar og hrepptu íslandsmeistaratitilinn þar. Mjög vel gert af svona ungu liði og framtíðin björt.
Mjög svo góð stemmning var í stúkunni á föstudaginn en Selfyssingar fjölmenntu til að horfa á þetta flotta fimleikafólk. Fimleikadeildin og liðin sem kepptu vilja koma á framfæri þakklæti fyrir frábæran stuðning.
Næsta mót er Minningarmótið sem og HSK mótið í eldri flokki en það verður keyrt samhliða í íþróttahúsi Vallaskóla sunnudaginn 5.maí. Svo er mjög fjölmennt FSÍ mót helgina 10.-12.maí en það er Vormót Fimleikasambands Íslands.
Blandað lið Selfoss á palli
Kvennalið Selfoss ásamt þjálfurum