Hrafnhildur Hanna átti stórleik
Stelpurnar okkar unnu frækinn en öruggan sigur á FH-ingum í Vallaskóla í kvöld. Lokatölur í leiknum urðu 26-21 eftir að staðan í hálfleik var 13-7.
Það blés ekki byrlega í upphafi leiks því að gestirnir mættu mjög ákveðnir til leiks og skoruðu þrjú fyrstu mörk leiksins. Þá hrukku Selfyssingar svo sannarlega í gang, skoruðu fimm mörk í röð og litu ekki til baka það sem eftir lifði leiks. Staðan í hálfleik eins og áður segir 13-7.
Í upphafi síðari hálfleiks var sama upp á teningnum. Stelpurnar léku sterka vörn og sóknarleikurinn á köflum með því besta sem sést hefur í Vallaskóla. Þegar tíu mínútur voru liðnar af hálfleiknum var forysta Selfyssinga komin í átta mörk, 20-12. Eftir það slökuðu Selfyssingar á og þrátt fyrir örvæntingafullar tilraunir FH-inga til að brjóta niður sóknarleik Selfyssinga héldu stelpurnar út allan tímann og unnu að lokum öruggan fimm marka sigur 26-21.
Það er greinilegt að endurkoma Þuríðar og Hrafnhildar Hönnu í liðið styrkti liðið gríðarlega. Hanna átti stórleik í kvöld en hún var markahæst með 9 mörk auk þess að gefa 4 stoðsendingar og verja 3 skot FH-inga í vörninni. Þuríður var næstmarkahæst með 5 mörk og átti einnig 4 stoðsendingar í leiknum. Carmen og Hildur Öder skoruðu 4 mörk hvor, Kara Rún 2 mörk og þær Thelma Sif og Helga Rún skoruðu hvor sitt markið. Þá verður að geta þess að þrátt fyrir að komast ekki á blað í kvöld átti Hulda góðan leik í sökn og vörn Selfoss og átti meðal annars 4 stoðsendingar.
Áslaug Ýr stóð í markinu allan leikinn og varði 15 skot þar af eitt víti.
Glæsilegur sigur hjá stelpunum sem þrátt fyrir sigurinn eru ennþá í 11. sæti Olísdeildarinnar en nú með 9 stig og narta í hælana á liðunum 8.-10. sæti. Næsti leikur stelpnanna er á útivelli gegn Fram laugardaginn 22. febrúar nk. og hefst hann klukkan 13:30.
---
Hrafnhildur Hanna átti stórleik í kvöld.
Mynd: umfs.is/Gissur