image1
Guðmundur Tyrfingsson leikmaður Selfoss eyddi síðustu viku hjá enska úrvlasdeildarfélaginu Brighton & Hove Albion þar sem hann æfði og spilaði með unglingaliðum félagsins.
Heimsóknin gekk mjög vel, Guðmundur æfði af krafti, fór í læknisskoðun og átti einnig viðtöl við forsvarsmenn félagsins og endaði á að spila svo einn leik.
Gummi lék með unglingaliði Brighton, hann spilaði sem striker allan leikinn og stóð sig virkilega vel, fékk ekki úr miklu að moða í fyrri hálfleik en átti fínan seinni hálfleik.
Leikurinn endaði með jafntefli, 4-4.
Gummi skoraði 2 fín mörk og fiskaði auk þess 2 víti sem liðsfélagi hans tók og skoraði úr öðru þeirra.
Heilt yfir flottur leikur hjá okkar manni og frábær vika við bestu aðstæður.
Nú í lok mánaðar mun Guðmundur svo halda til Hollands þar sem honum hefur verið boðið að æfa með Hollenska úrvalsdeildarliðinu Heerenveen í viku
Óskum Guðmundi góðs gengis