Unglingalandsliðshópur Íslands 2024. Á myndinni eru Þorvaldur Gauti, Ívar Ylur, Hjálmar Vilhelm, Vésteinn, Bryndís Embla, Arndís Eva og Anna Metta. Á myndina vantar Daníel Breka og Helgu Fjólu
Frjálsíþróttasamband Íslands birti á dögunum unglingalandsliðshóp FRÍ. Til að komast í hópinn þarf að ná mjög ströngum lágmörkum og er íþróttafólkið tekið jafnóðum inn í hópinn. Í hópnum í dag eru 50 einstaklingar á aldrinum 15-19 ára og þar af æfa 9 einstaklingar hjá Frjálsíþróttadeild Selfoss. Mjög margir stórefnilegir fjölhæfir íþróttamenn að æfa með frjálsíþróttadeild Selfoss og með lágmörk í mörgum greinum og einnig eru nokkrir stutt frá lágmörkum og ná vonandi lágmörkum í vetur.
Lágmörkin í hópinn eru eftirfarandi : https://fri.is/afreksmal/unglingar/urvalshopur/
Íþróttamennirnir sem eru í Unglingalandsliðshópnum og þær greinar sem þeir eru með lágmark í :
Hjálmar Vilhelm Rúnarsson Selfoss: 60m hlaup - 100m hlaup - 200m hlaup - hástökk - þrístökk - kúluvarp - kringlukast - spjótkast og tugþraut
Ívar Ylur Birkisson Dímon: 60m hlaup - 200m hlaup - 60m grind - 110m grind - 400m grind og kúluvarp
Vésteinn Loftsson Selfoss: Kringlukast
Þorvaldur Gauti Hafsteinsson Selfoss: 800m hlaup
Daníel Breki Elvarsson Selfoss: Spjótkast
Anna Metta Óskarsdóttir Selfoss: 300m hlaup, hástökk, langstökk og þrístökk
Helga Fjóla Erlendsdóttir Garpur: 200m hlaup, 80m grind, hástökk, langstökk, þrístökk og sleggjukast
Bryndís Embla Einarsdóttir Selfoss: kúluvarp, spjótkast, kringlukast og sleggjukast
Arndís Eva Vigfúsdóttir Selfoss: Kúluvarp og kringlukast