Laugardaginn 9. desember munu jólasveinarnir úr Ingólfsfjalli koma til byggða og heilsa upp á bæjarbúa og nærsveitunga á torginu við Pysluvagninn á Selfossi.
Dagskráin hefst kl.15:45 en þá syngur Karlakór Selfoss nokkur jólalög og klukkan 16:00 koma jólasveinarnir akandi yfir Ölfusárbrúna. Þá verður sungið og trallað og haft gaman. Vonast sveinarnir til að sem flestir komi og taki þátt í gleðinni og klæðist jólasveinabúningum eða jólasveinahúfum. Boðið verður upp á frítt kakó á torginu.
Ungmennafélag Selfoss mun aðstoða jólasveinana fyrir þessi jól eins og áður og verða þeim innan handar með allt sem snýr að jólasveinamálum. Má þar nefna að taka niður pantanir á jólaböll eða heimsóknir og einnig hina ómissandi pakkaþjónustu, en jólasveinarnir hafa lengi séð um að bera út pakka á aðfangadagsmorgun milli kl. 10:00-13:00. Tekið er á móti litlum pökkum í Tíbrá, félagsheimili Umf. Selfoss á Þorláksmessu milli kl. 18:00-21:00. Nánari upplýsingar og pantanir eru í síma 894-5070 eða í netfanginu umfs@umfs.is.