Facebook Jón Daði1
Jón Daði Böðvarsson mun taka á móti aðdáendum sínum í verslun Nettó við Austurveg 42 á Selfossi á laugardaginn, frá klukkan 17:00.
Þar ætlar hann að koma sér vel fyrir og gefa aðdáendum eiginhandaráritanir.
Fyrir þá fyrstu þrjátíu sem mæta og heilsa upp á Jón Daða, verða sjaldgæfar gullmyndir af kappanum í boði. Auk þess verða til sölu sérleg gjafabox, þar sem Jón Daði er í aðalhlutverki.
Jón Daði heldur von bráðar utan til Rússlands ásamt liðsfélögum sínum, þar sem íslenska karlalandsliðið keppir í fyrsta skipti á heimsmeistaramóti í knattspyrnu. Fyrsti leikur liðsins verður gegn liði Argentínu þann 16. júní svo óhætt er að segja að spennan stigmagnist dag frá degi.
Allir eru hjartanlega velkomnir í Nettó til þess að kasta kveðju á sinn mann áður en hann heldur út á vit ævintýranna.