Roberta Ivanauskaitė & Karolis Stropus
Þau Karolis Stropus og Roberta Ivanauskaitė hafa samið við handknattleiksdeild Selfoss til þriggja ára.
Roberta er 23 ára skytta og spilaði síðast með Aftureldingu í Olísdeildinni 2019-2020, en var frá á síðasta tímabili vegna meiðsla. Þar áður lék hún í þýsku fyrstu deildinni með liði Neckarsulmer SU.
Karolis er 30 ára skytta sem spilaði með Þór á Akureyri í vetur, en einnig hefur hann leikið með Aftureldingu, Víking og Akureyri á Íslandi.
Bæði hafa þau leikið töluvert fyrir landslið Litháen og bæði hafa þau spilað með vinaliði okkar í Litháen, Dragunas frá Klaipeda. En Karolis spilaði með Dragunas þegar Selfoss mætti þeim í Evrópukeppninni haustið 2018.
Það er því ljóst að að þau eru góð viðbót við meistaraflokkana okkar. Við bjóðum þau bæði tvö hjartanlega velkomin á Selfoss.
Mynd: Roberta Ivanauskaitė og Karolis Stropus
Umf. Selfoss / Aðsend