Netto-slogan
Fimleikadeild Selfoss heldur byrjendamót í hópfimleikum laugardaginn 15. mars 2014. Mótið verður haldið í íþróttahúsinu Iðu sem er íþróttahús Fjölbrautaskólans á Suðurlandi.
Keppt verður eftir 5. flokks reglum FSÍ með öllum þeim undanþágum sem þar eru teknar fram sem og meira til. Aldurstakmark þátttakenda eru börn fædd 2007 og fyrr. Skipt verður í aldursflokka eftir skráningu. Allir fá viðurkenningu fyrir þátttökuna þar sem veitt verða verðlaun fyrir besta áhaldið hjá hverju liði fyrir sig.
Þátttökugjald er 1.500 kr. Innifalið í því er verðlaunapeningur og íspinni. Hvert félag sem skráir lið til keppni sendir einn dómara eða greiðir 5.000 kr. í dómaragjald til okkar og þá finnum við dómara og greiðum þeim laun.
Skráningarfrestur er 5. mars á netfangið fimleikarselfoss@simnet.is.
Nánari upplýsingar veitir Olga Bjarnadóttir á sama netfang.
Hlökkum til að sjá ykkur á Selfossi.