Sindri Pálmason
Selfyssingar hafa samþykkt tilboð danska úrvalsdeildarliðsins Esbjerg í miðjumanninn unga Sindra Pálmason.
Sindri, sem er 17 ára gamall, fór til Esbjerg á reynslu í október og í kjölfarið sýndi danska félagið mikinn áhuga á að fá hann til liðs við sig.
Sindri er miðjumaður og spilaði hann þrjá leiki með uppeldisfélagi sínu í 1. deildinni í sumar og var lykilmaður í 2. flokki félagsins.
Hann lék sína fyrstu landsleiki í haust þegar hann var valinn í U19 ára lið Íslands og lék þrjá leiki með liðinu á móti í Svíþjóð.
Esbjerg er félagsliðið í samnenfdri borg á Jótlandi. Liðið hefur fimm sinnum orðið danskur meistari og er ríkjandi bikarmeistari.
Fyrst var greint frá samkomulaginu á vef Sunnlenska.is sem auk þess birti viðtal við Sindra.