u17 selfyssingar 2019-crop
Í síðustu viku tók U-17 landslið karla þátt í árlegu móti, European Open 17, sem fram fer í Svíþjóð samhliða Partille Cup. Þrír Selfyssingar voru valdir í þetta verkefni, það voru þeir Reynir Freyr Sveinsson, Ísak Gústafsson og Tryggvi Þórisson. Samanlagt skoruðu þeir 44 mörk í þessum 9 leikjum og léku stór hlutverk.
Íslensku strákarnir gerðu sér lítið fyrir og unnu undanriðilinn. Í milliriðlinum höfðu Svíar betur í hreinum úrslitaleik um efsta sæti og þar með sæti í úrslitaleik mótsins. Annað sæti milliriðilsins kom strákunum okkar í leik um bronsið gegn Hvíta-Rússlandi. Það var æsispennandi leikur þar sem Hvít-Rússar virtust ætla að kafsigla Íslandi, en stákarnir spyrntu við fótum og unnu á endanum með einu marki.
Þriðja sætið var því niðurstaðan fyrir íslensku strákana. Svíar töpuðu svo nokkuð sannfærandi fyrir Færeyjingum í úrslitaleik mótsins. Tryggvi Þórisson var valinn besti varnarmaður mótsins. Við óskum strákunum okkar og liðinu öllu til hamingju með árangurinn.