Það má með sanni segja að knattspyrnusumarið 2015 hefst á útivelli. Strákarnir hefja leik gegn BÍ/Bolungarvík á Ísafirði en stelpurnar í Árbænum þaðan sem við eigum góðar minningar úr leikjum okkar gegn Fylki frá seinasta sumri. Fyrstu heimaleikirnir eru gegn HK í 1. deildinni og grannaslagur gegn Eyjapæjum í Pepsi-deildinni.
Þetta kom í ljós á formanna- og framkvæmdastjórafundi sem haldinn var í höfuðstöðvum KSÍ á laugardag þar sem var dregið í töfluröð í Pepsi-deild kvenna og karla og 1. og 2. deild karla.
Með því að smella á tenglana hér að neðan má sjá hvað félög mætast í hverri umferð í þessum deildum en athuga skal að hafa leikjaniðurröðunina í umferðaröð.
Pepsi-deild kvenna
Pepsi-deild karla
1. deild karla
2. deild karla