Katla María vs Fram
Selfoss sigraði Fylki nokkuð örugglega í Árbænum í gær, 19-23, í Grill 66 deild kvenna.
Selfyssingar voru með yfirhöndina allan leikinn, staðan í hálfleik var 9-13. Mest komust stelpurnar sjö mörkum yfir, 11-18, um miðjan seinni hálfleik. Þær gáfu aðeins eftir undir lokin og urðu lokatölur 19-23.
Mörk Selfoss: Katla María Magnúsdóttir 8, Hulda Dís Þrastardóttir 6/3, Agnes Sigurðardóttir 2, Katla Björg Ómarsdóttir 2, Þuríður Ósk Ingimarsdóttir 2, Hólmfríður Arna Steinsdóttir 1, Rakel Guðjónsdóttir 1, Elín Krista Sigurðardóttir 1.
Varin skot: Henriette Østergaard 12 (38%)
Selfoss er því áfram í 3. sæti með 22 stig. Það er leikur hjá strákunum í dag gegn HK í Kórnum. Næstu leikir eru síðan á laugardag, sannkallaður tvíhöfði þar sem strákarnir mæta ÍBV kl. 16:00 og stelpurnar taka á móti ÍR kl. 18:15. Handboltaveisla.
---
Katla María var markahæst í kvöld.
Ljósmynd: Umf. Selfoss/IHH