Tanja, Sólveig og Aníta við afhendingu starfsmerkjanna
Mynd: Inga Heiða
Á jólasýninguna okkar kom Sólveig Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Fimleikasambands Íslands meðal annarra gesta.
Eftir sýninguna kl 11:15 óskaði hún eftir að fá að segja nokkur orð og heiðraði þar Tönju Birgisdóttur, yfirþjálfara og Anítu Þorgerði Tryggvadóttur, deildarstjóra hjá okkur með starfsmerki Fimleikasambands Íslands. Sólveig las upp fallegan texta um stelpurnar og fylltumst við hjá deildinni stolti við að heyra að það sé tekið eftir þeirra frábæra starfi.
Stelpurnar hafa báðar unnið í fimleikahreyfingunni í fjölda ára og starfa í dag báðar sem fimleikaþjálfarar í fullu starfi. Þær hafa báðar unnið sem landsliðsþjálfarar, Tanja í þremur verkefnum og Aníta í tveimur, auk þess sem þær hafa báðar setið í Tækninefnd hópfimleika hjá Fimleikasambandi Íslands.
Aníta er menntaður íþróttaþjálfari, hefur byggt upp fimleikadeildir víðsvegar um Suðurland og brennur fyrir því að byggja upp gott fimleikastarf og að hjálpa iðkendum að ná enn lengra í sinni íþrótt. Hún hefur einnig séð um Hæfileikamótun hjá Fimleikasambandi Íslands í tvígang og nær einstaklega við til iðkenda á öllum getustigum.
Tanja leggur sem yfirþjálfari mikið upp úr að það sé gott fimleikastarf hér á Selfossi og að iðkendur þurfi ekki að æfa á Höfuðborgarsvæðinu til þess að fá góða þjálfun. Hún leggur mikla vinnu í teymisvinnu þjálfara og þjálfar upp góða þjálfara með því að para þá með reynslumeiri í þjálfun. Hún sér um allt faglegt starf hjá deildinni og er í mjög góðum samskiptum við þjálfara, iðkendur og foreldra. Að auki þjálfar hún í einu akademíu landsins og elstu flokkana okkar tvo sem hafa náð eftirtektarverðum árangri síðustu ár.
Deildin er svo sannarlega heppin að hafa þessar tvær hjá sér og við erum mjög þakklát fyrir það <3 Til hamingu stelpur, þið eruð svo sannarlega vel að þessu komnar!