sund-unglingamot-hsk-2
Unglingamót HSK í sundi fór fram í Sundhöll Selfoss sl. sunnudag og mættu keppendur frá þremur félögum til leiks. Keppt var í þremur flokkum: hnátu og hnokka 10 ára og yngri, sveina og meyja 11-12 ára og telpu og drengja 13-14 ára.Umf. Selfoss vann stigakeppni félaga með 71 stig, Hamar varð í öðru sæti með 55 stig og Dímon í þriðja með 21 stig.
Bætingabikarinn hlaut Jóhann Már Jóhannsonn, 11 ára Hamarskeppandi, fyrir 50 metra baksund, en hann synti á 1.09,28 og bætti tímann sinn frá Unglingamótinu 2015 um rúmar 58 sekúndur.
Hér að neðan er getið um HSK meistara í flokkum 11-14 ára en í flokki 10 ára og yngri fengu allir jafna viðurkenningu. Heildarúrslit má finna á heimasíðu HSK.
100 m skriðsund 13-14 ára
Sara Ægisdóttir, Selfoss
Oliver Gabríel Figlarski, Selfoss
50 m bringusund 11-12 ára
María Clausen Pétursd., Hamar
Teitur Snær Vignisson, Dímon
100 m baksund 13-14 ára
Sara Ægisdóttir, Selfoss
Oliver Gabríel Figlarski, Selfoss
50 m skriðsund 11-12 ára
María Clausen Pétursd., Hamar
Teitur Snær Vignisson, Dímon
100 m flugsund 13-14 ára
Sara Ægisdóttir, Selfoss
Oliver Gabríel Figlarski, Selfoss
50 m baksund 11-12 ára
Tamara Sól Kubrzeniecka, Hamar
Jóhann Már Jóhansssom, Hamar
100 m bringusund 13-14 ára
Birgitta Ósk Hlöðvesd., Selfoss
Adrian Zoladek
50 m flugsund 11-12 ára
María Clausen Pétursd., Hamar
---
Þetta glæsilega sundfólk tók þátt í unglingamóti HSK í sundi sem fór fram í Sundhöll Selfoss.
Ljósmyndir: Umf. Selfoss/Kristján Emil Guðmundsson