Valið í yngri landsliðin

Þjálfarar U-19, U-17 og U-15 ára landsliða kvenna hafa valið æfingahópa fyrir komandi landsliðshelgi sem verður 24. – 27. október.  Þar eigum við Selfyssingar glæsilega fulltrúa.

Í U-19 ára liðinu eru systurnar Adela Eyrún og Ágústa Tanja Jóhannsdætur sem og Hulda Hrönn Bragadóttir.  Í U-17 ára liðinu eru þær Eva lind Tyrfingsdóttir og Inga Dís Axelsdóttir.  Í U-15 ára liðinu er svo Hjördís Gauja Kjartansdóttir.