Frjálsar Brúarhlaupið 230
Brúarhlaup Selfoss var haldið 8. ágúst sl. og voru hvorki meira né minna en þrettán HSK met sett þann daginn eins og fram kom í samantekt á vefsíðu HSK.
Lára Björk Pétursdóttir hljóp 5 km hlaup á 22;46 mín og setti HSK met í sex flokkum, en árangur hennar er met í 13, 14, 15, 16-17, 18-19 og 20-22 ára flokki stúlkna.
Ástþór Jón Tryggvason setti þrjú HSK met í 5 km hlaupi. Hann hljóp á 18;27 mín sem er met í 16-17 ára flokki og einnig í 18-19 og 20-22 ára flokki drengja.
Þorsteinn Magnússon setti HSK met í 5 km hlaupi í flokki 35-39 ára karla, en hann hljóp á 18;33 mín.
Sædís Íva Elíasdóttir bætti HSK metið í 5 km hlaupi í flokki 45-49 ára, en hún hljóp á 31;42 mín.
Þá bættu hjónin Sigmundur Stefánsson og Ingileif Auðunsdóttir HSK met sín í 10 km götuhlaupi í flokki 60-64 ára. Sigmundur hljóp á 42;21 mín og Ingileif var á 55;45 mín.
Heildarúrslit Brúarhlaupsins