Frjálsar - Grýlupottahlaup 2016
Grýlupottahlaup Selfoss 2017 hefst laugardaginn 22. apríl næstkomandi. Er þetta í 48. skipti sem hlaupið er haldið.
Grýlupottahlaupið er 850 metra langt. Skráning hefst kl. 10:30 í Tíbrá, félagsheimili Umf. Selfoss, á íþróttavellinum. Hlaupið hefst svo kl. 11:00.
Í hlaupinu eru sex einstaklingar ræstir saman með hálfrar mínútu millibili. Þátttakendur eru á öllum aldri og er aðalatriðið að vera með.
Hlaupið fer fram sex laugardaga í röð. Fyrsta hlaupið er 22. apríl, síðan 29. apríl, 6. maí, 13. maí, 20. maí og 27. maí.
Keppt er í öllum aldursflokkum karla og kvenna. Að loknum sex hlaupum er tekinn saman besti árangur samanlagt úr fjórum hlaupum og veitt verðlaun.Keppt er í öllum aldursflokkum karla og kvenna. Að loknum sex hlaupum er tekinn saman besti árangur samanlagt úr fjórum hlaupum og veitt verðlaun.
Stefnt er á að hafa verðlaunaafhendingu fimmtudaginn 1. júní í Tíbrá klukkan 11.