Ný stjórn Taekwondodeildar. Sigurjón, Freyr, Ófeigur, Bjarnheiður, Ólöf og Guðbjörg. Á myndina vantar Aðalbjörgu.
Aðalfundur Taekwondodeildar Umf.Selfoss, var haldinn 2.mars sl. Auk venjulegra aðalfundarstarfa, var farið yfir starf síðasta árs og áherslur á líðandi ári. Ný stjórn var kosin á fundinum, en í stjórn voru kosin:
Ófeigur Ágúst Leifsson, formaður
Bjarnheiður Ástgeirsdóttir, gjaldkeri.
Ólöf Ólafsdóttir, ritari.
Guðbjörg Arnardóttir, meðstjórnandi.
Freyr Hreinsson, meðstjórnandi.
Aðalbjörg Runólfsdóttir, varamaður í stjórn.
Sigurjón Bergur Eiríksson, varamaður í stjórn.