Selfoss_merki_nytt
Knattspyrnudeild Selfoss hefur samið við bandaríska sóknarmanninn Alex Alugas og mun hún leika með liði Selfoss í 1. deild kvenna út sumarið.
Alugas er 23 ára en hún lék með Sindra á Hornafirði í 1. deildinni í fyrra áður en hún gekk í raðir FH í Pepsi-deildinni.
Hún skoraði sjö mörk í sex leikjum fyrir Sindra og þrjú mörk í níu leikjum fyrir FH og var markahæsti leikmaður beggja liða á síðasta tímabili.
Félagaskiptaglugginn hjá KSÍ opnar á laugardag og verður Alugas því komin með leikheimild fyrir stórleikinn gegn HK/Víkingi á Selfossi á sunnudaginn.