Anna Metta setti Íslandsmet í tveimur flokkum í þrístökki

Anna Metta uppskar 3 gullverðlaun, 3 silfurverðlaun og 1 bronsverðlaun auk þess að setja tvö Íslandsmet í þrístökki
Anna Metta uppskar 3 gullverðlaun, 3 silfurverðlaun og 1 bronsverðlaun auk þess að setja tvö Íslandsmet í þrístökki

Keppendur Frjálsíþróttadeildar Selfoss tóku þátt í Silfurleikum ÍR laugardaginn 16.nóvember.. Allir þátttakendur 11 ára og yngri fengu þátttökuverðlaun á mótinu, í flokki 12 ára fengu 10 stigahæstu verðlaun og veitt voru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í flokkum 13-17 ára. Keppendur deildarinnar stóðu sig frábærlega en hæst bar Íslandsmet Önnu Mettu Óskarsdóttir í þrístökki í flokkum 14 og 15 ára og HSK met Hjálmars Vilhelms Rúnarssonar í kúluvarpi.

Anna Metta Óskarsdóttir stórbætti sig í þrístökki þegar hún stökk 11,46m og bætti 2 Íslandsmet í þrístökki, bæði í flokki 14 og 15 ára. Íslandsmetið í 14 ára flokki var 11,38m í eigu Þórdísar Evu Steinsdóttir og 15 ára metið var 11,43 m í eigu Örnu Stefaníu Guðmundsdóttur. Anna Metta sló einnig fjögur HSK met með þessu risastökki, í flokkum 14 ára, 15 ára , 16-17 ára og 18-19 ára. Frábær árangur hjá þessari stórefnilegu íþróttakonu en að sjálfsögðu vann hún til gullverðlauna í þrístökkinu. Stökkið er jafnframt þriðja lengsta þrístökk ársins í kvennaflokki. Hún vann einnig til gullverðlauna þegar hún vippaði sér yfir 1.58m í hástökki og þegar hún kom fyrst í mark í 800m hlaupi á tímanum 2:52,80 mín. Hún nældi sér einnig í þrenn silfurverðlaun á mótinu. Hljóp 60m á 8,36sek, 200 m hljóp hún á 28,20sek og 60 m grindahlaupið fór hún á 10,15 sek og að lokum kastaði hún kúlunni til bronsverðlauna þegar hún kastaði henni 9,20m.

Hjálmar Vilhelm Rúnarsson stóð sig frábærlega í flokki 16-17 ára. Hann krækti sér í gullverðlaun í þremur greinum. Í kúlvarpi stórbætti hann HSK met Arnar Davíðssonar í flokki 16-17 ára þegar hann kastaði kúlunni 15,18m en eldra metið var 14,35m. Hástökkið sigraði hann þegar hann bætti sig með 1,90m stökki sem er jafnframt fjórða hæsta stökk ársins í karlaflokki. Í 60m hlaupi kom hann síðan fyrstur í mark á tímanum 7,43 sek sem er bæting hjá kappanum.

Hugrún Birna Hjaltadóttir sigraði í flokki 16-17 ára í grindahlaupi á tímanum 11,01 sek, hún bætti sig í 200m með tímann 28,84 sek og vann til silfuverðlauna og að lokum kom hún þriðja í mark í 60m hlaupi á tímanum 8,76sek. Arndís Eva Vigfúsdóttir sigraði í kúluvarpi í flokki 15 ára með 10,86m löngu kasti og Adda Sóley Sæland sigraði í kúluvarpi í flokki 14 ára þegar hún varpaði kúlunni 9,46m. Þær stöllur Arna Hrönn Grétarsdóttir og Dagmar Sif Morthens urðu jafnar í 1-3 sæti í hástökki í flokki 15 ára þegar þær vippuðu sér báðar yfir 1.41m. Elísabet Freyja Elvarsdóttir bætti sig í kúluvarpi í flokki 13 ára þegar hún varpaði kúlunni 9.62m og vann til silfurverðlauna. Kristján Kári Ólafsson varpaði kúlunni 11,30m í flokki 16-17 ára og vann til silfurverðlauna. Þórhildur Salka Jónsdóttir stökk 8,90m í þrístökki í flokki 12 ára og uppskar bronsverðlaun, sömu verðlaun og Þórhildur Sara Jónasardóttir vann til í 800m hlaupi í flokki 16-17 ára þegar hún kom i mark á tímanum 2:34, 03 mín

Hjálmar Vilhelm Rúnarsson vann til þriggja gullverðlauna auk þess sem hann sló HSK met í kúluvarpi

Hugrún Birna Hjaltadóttir vann til gullverðlauna og tveggja bronsverðlauna

Þórhildur Sara Jónasardóttir náði stórgóðum tíma í 800m hlaupi og vann til bronsverðlauna

Hilmir Dreki, Andri Már og Bjarkey með fínan árangur í 4-þraut

Elísabet Freyja, Hugrún Hadda og Magnea (Dímon) stóðu sig mjög vel á mótinu

Hildur í 8.sæti í fimmtarþraut og Salka í 10.sæti í fimmtarþraut og Anna Sigríður (Garpur)