IMG_2066
Frjálsíþróttasumarbúðir FRÍ voru haldnar á Selfossi dagana 21.-25. júní. Rúmlega 50 börn á aldrinum 11-14 ára komu í skólann. Sumarbúðirnar heppnuðust mjög vel og fóru krakkarnir ánægðir heim. Börnin komu víða að í ár eða af öllu Suðurlandi, Hafnafirði, Reykjavík, Kópavogi, Mosfellsbæ, Patreksfirði, Borgarnesi, Garðabæ, Búðardal og Blönduósi.
Markmið sumarbúðanna er að kynna og breiða út frjálsíþróttir á Íslandi. Dagskráin var mjög fjölbreytt þar sem til að mynda voru kvöldvökur, leikir, sundferðir og fleira í bland við æfingar. Sölvi Tryggvason svaraði spurningum og fræddi börnin um heilsu. Einnig deildi Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir reynslu sinni þegar hún varð Ólympíumeistari ungmenna í 200 m hlaupi árið 2018. Guðbjörg þjálfaði einnig spretthlaup á einni æfingunni í skólanum. Guðni Valur Guðnason kringlukastari, einn fremsti íþróttamaður sem við eigum í dag í frjálsum var einnig að þjálfa sem og Íslandsmethafinn í þrístökki Sigríður Anna Guðjónsdóttir, ásamt fleirum góðum þjálfurum.
Sumarbúðirnar fór fram við frábærar aðstæður þar sem stutt er í alla aðstöðu, til að mynda gistiaðstöðuna í Vallaskóla, frjálsíþróttavöllinn, íþróttahúsin og sundlaugina. Við viljum þakka Sveitafélaginu Árborg og Umf. Selfoss fyrir velvild í garð búðanna.
Sumarbúðirnar gegna mikilvægu hlutverki í að opna augu ungmenna fyrir ágæti íþróttaiðkunnar og styðja fjölmargar rannsóknir þá fullyrðingu að ungmenni sem stunda íþróttir leiðast síður út í óreglu síðar á lífsleiðinni. Síðast en ekki síst öðlast ungmennin tækifæri til að kynnast hvert öðru og mynda tengslanet og auka hæfni sína í mannlegum samskiptum.
Sumarbúðunum lauk með velheppnuðu frjálsíþróttamóti á fimmtudeginum þar sem persónulegir sigrar náðust og margar bætingar litu dagsins ljós. Eftir mótið var haldin grillveisla og fengu krakkarnir viðurkenningarskjöl fyrir þátttöku í skólanum. Krakkarnir kvöddust sátt og sæl eftir skemmtilega viku.
Frjálsíþróttabúðirnar vilja þakka öllum þeim fjölda fyrirtækja sem lögðu þeim lið, sá stuðningur er ómetanlegur, en þau voru: MS, Nettó, Sölufélag Garðyrkjubænda, Kjúklingabúið Vor, Hafnarnes Ver, Sláturfélag Suðurlands, Almarsbakarí, GK bakarí, Myllan, Kjörís, Tiger og Kökugerð HP.
Ágústa og Fjóla Signý,
yfirumsjónarmenn frjálsíþróttasumarbúðanna á HSK-svæðinu.
---
Á mynd með fréttinni eru þáttakendur í sumarbúðunum ásamt þjálfurum.
Þátttakendur með viðurkenningarskjal að loknum sumarbúðum.
Ljósmyndir: Umf. Selfoss