Elínborg Katla var einn af mikilvægu hlekkjum liðsins síðasta vetur og skoraði rúm þrjú mörk að meðaltali í leik.
Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir hefur skrifað undir tveggja ára framlengingu á samningi sínum við handknattleiksdeild Selfoss.
Þrátt fyrir ungan aldur er Elínborg Katla að hefja sinn fjórða vetur í meistaraflokki. Á þeim tíma hefur hún unnið sig upp úr því að vera efnileg upp í að vera ein af markahæstu leikmönnum Selfoss þegar liðið sigraði Grill 66 deildina og tryggði sig í Olísdeildina síðasta vetur.
Það hefur verið gaman að fylgjast með Elínborgu takast á við aukna ábyrgð og vaxa með hlutverki sínu. Við erum glöð að fá að sjá hana taka næstu skref sem hluti af gríðarlega spennandi liði Selfoss í Olísdeildinni í vetur.