árborg
Frístundaakstur innan Sveitarfélagsins Árborgar heldur áfram skólaárið 2020-2021.
Frístundabíllinn ekur alla virka daga frá kl. 13:10 - 16:30 (misjafnt milli leiða) og hefur það hlutverk að keyra börn frá frístundaheimilum og skóla í íþrótta- og frístundastarf innan sveitarfélagsins. Öll börn geta nýtt sér frístundabílinn og ekki er innheimt neitt gjald í bílinn.
Um er að ræða tvær akstursleiðir:
Leið 1: Innanbæjar á Selfossi (keyrt af Guðmundi Tyrfingssyni ehf.)
Leið 2: Eyrarbakki - Stokkseyri - Selfoss (Hluti af innanbæjarstrætó, leið 75)
Allar nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Sveitarfélagsins Árborgar.