Ný stjórn Rafíþróttadeildar, Sigurður, Grímur, Auður og Hörður. Á myndina vantar, Noel Elías.
Fyrsti aðalfundur Rafíþróttadeildar Umf.Selfoss, var haldinn, 2. mars sl. Deildin var formlega stofnuð í júní á sl. ári, eftir að hafa verið formlega samþykkt á aðalfundi Umf.Selfoss í apríl á sl. ári. Farið var yfir starf deildarinnar sem hefur verið blómlegt og þónokkur fjöldi barna og unglinga eru iðkendur hjá deildinni. Kosin var ný stjórn á aðalfundinum, en hana skipa:
Grímur Freyr Björnsson, formaður.
Auður Grétarsdóttir, gjaldkeri.
Sigurður Erlends Guðbjargarson, ritari.
Noel Elías Chareyre, meðstjórnandi.
Hörður Bjarni Harðarson, meðstjórnandi.