30515722_10156456918862268_6496542580406756307_n
Laugardaginn 7. apríl síðastliðinn hélt knattspyrnudeildin upp á Guðjónsdaginn og fór Guðjónsmótið, firmamót í knattspyrnu fram í íþróttahúsinu Iðu.
Hátt í 20 lið voru skráð til leiks og var mótið frábært í alla staði
Hávarðr Ísfirðingur sendi syni sína til leiks og stóðu þeir uppi sem sigurvegarar eftir æsispennandi úrslitaleik við Team 84.
Hið margverðlaunaða lið Myrru endaði mótið í 3. sæti
Stuðningsmenn F.c Krulla áttu stúkuna og unnu réttilega verðlaunin stuðningslið mótsins.
Reynir Bergmann markvörður JÁVERKS var svo kosinn eftirtekaverðasti leikmaður mótsins - þvílíkir taktar í markinu hafa sjaldan sést!
Hlökkum til að sjá ykkur á Guðjónsmótinu á næsta ári