EM 2016 Póllandi
Selfyssingurinn Guðmundur Árni Ólafsson er í 21 manna landsliðshópi sem Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari valdi til undirbúnings fyrir EM 2016 sem fram fer í Póllandi. Þá er Bjarki Már Elíasson einnig í hópnum en hann lék um skeið með Selfoss.
Evrópumeistaramótið í handknattleik fer fram í Póllandi 15.-31. janúar n.k. og er þetta níunda EM í röð þar sem strákarnir okkar eru meðal þátttakenda.
Sjá nánar á vef HSÍ.
Þá hefur Aron Kristjánsson einnig valið 14 manna B landsliðs hóp leikmanna að utan og úr íslensku deildinni. Í hópnum er Selfyssingarnir Árni Steinn Steinþórson, leikmaður Sonderjyske og Janus Daði Smárason, leikmaður Hauka.