Handbolti - Hrafnhildur Hanna í úrvalsdlið
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, langmarkahæsti leikmaður Selfoss og Olís-deildarinnar, var valin sem miðjumaður í lið ársins í Olís deild kvenna í vetur. Það voru þjálfarar í deildinni sem kusu í liðið.
Eins og áður segir var hún langmarkahæst og einn besti leikmaður deildarinnar í vetur. Hún skoraði 174 mörk fyrir Selfoss og var langmarkahæst þrátt fyrir að hafa misst af síðustu þremur leikjum Selfoss vegna meiðsla.
Nánar er fjallað um Hönnu á vef Sunnlenska.is.
---
Hrafnhildur Hanna lengst til hægri í fríðu úrvalsliði Olís-deildainnar.
Ljósmynd: HSÍ