Bikarúrslit eftir leik
Knattspyrnusamband Íslands stendur fyrir málþingi, föstudaginn 13. febrúar kl. 17:30, í höfuðstöðvum KSÍ. Málþingið, sem er öllum opið, ber yfirskriftina Hver er staða kvenna innan íþróttahreyfingarinnar?
Ráðstefnustjóri er Klara Bjartmarz, skrifstofustjóri KSÍ.
Erindi flytja:
- Borghildur Sigurðardóttir, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks. Erindi hennar fjallar um þátttöku kvenna í stjórnum íþróttafélaga.
- Karen Espelund, stjórnarmaður í UEFA. Erindi hennar fjallar um útbreiðslu knattspyrnu kvenna.
- Eiríkur Stefán Ásgeirsson, formaður samtaka íþróttafréttamanna. Erindi hans fjallar um umfjöllun fjölmiðla um konur í íþróttum.
---
Ljósmynd: Sunnlenska.is/Guðmundur Karl