Örn
Örn Östenberg hefur skrifað undir til tveggja ára samning við handknattleiksdeild Selfoss.
Örn sem er vinstri skytta er sonur Önnu Östenberg og Vésteins Hafsteinssonar, hann er fæddur í Helsingborg og hóf handboltaferilinn og spilaði lengi hjá Vaxjö HF. Hann hefur verið leikmaður IFK Kristianstad frá árinu 2015.
Örn hefur spilað fyrir yngri landslið Íslands og er í U-19 landsliði Íslands sem tekur þátt í HM í Georgíu í sumar.
Mikill fengur fyrir handknattleiksdeildina að fá þennan sómapilt og mikla efni til liðs við félagið.
MM