knattspyrna-kristrun-rut-antonsdottir
Stelpurnar okkar unnu afar mikilvægan sigur á heimavelli gegn Keflavík í 1. deildinni í gær.
Stelpurnar byrjuðu leikinn gegn Keflavík af krafti og komust yfir strax á 2. mínútu þegar Kristrún Rut Antonsdóttir skallaði boltann inn eftir hornspyrnu. Á 18. mínútu fengu Selfyssingar næstu hornspyrnu og eftir baráttu í vítateignum kom Karitas Tómasdóttir knettinum í netið. Fleiri urðu mörkin ekki og Selfyssingar fögnuðu 2-0 sigri.
Nánar er fjallað um leikinn á vef Sunnlenska.is.
Stelpurnar eru í þriðja sæti deildarinnar með 13 stig og sækja Hamrana heim á Akureyri í næstu umferð laugardaginn 1. júlí klukkan 14:00.
---
Kristrún hefur skorað fjögur mörk fyrir Selfoss í sumar.
Ljósmynd: Umf. Selfoss