Knattspyrna - Kristrún Rut Antonsdóttir GKS
Selfoss vann mikilvægan sigur á Hömrunum í toppbaráttu 1. deildar kvenna í knattspyrnu, í Boganum á Akureyri á laugardag.
Selfoss komst í 2-0 í fyrri hálfleik. Magdalena Reimus og Kristrún Rut Antonsdóttir skoruðu þá fyrir þær vínrauðu og Kristrún innsiglaði svo 3-0 sigur Selfoss með öðru marki sínu í síðari hálfleik.
Nánar er fjallað um leikinn á vef Sunnlenska.is.
Selfoss hefur 16 stig í þriðja sæti deildarinnar og sækir Þrótti Reykjavík heim í næstu umferð mánudaginn 10. júlí kl. 19:15.
---
Kristrún Rut Antonsdóttir skoraði tvívegis fyrir Selfyssinga.
Ljósmynd: Sunnlenska.is/Guðmundur Karl