Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir
Kvennalið Selfoss sótti Val heim á Hlíðarenda í Olís-deildinni í handbolta í gær. Valskonur voru sterkari stærstan hluta leiksins og sigruðu 30-24.
Selfoss hafði frumkvæðið framan af leik og leiddi 4-6 þegar rúmar 13 mínútur voru liðnar. Valur jafnaði 6-6 á fimm mínútna kafla og náði í kjölfarið 11-7 forystu. Staðan var 13-9 í hálfleik.
Valskonur byrjuðu síðari hálfleikinn af krafti og komust í 16-10 og Selfyssingar áttu erfitt með að brúa bilið eftir það. Munurinn varð mestur átta mörk, en Selfoss klóraði í lítillega í bakkann á lokamínútunum.
Fjallað var um leikinn á vef Sunnlenska.is.
Eftir leiki kvöldsins er Selfoss áfram í 7. sæti með 22 stig, en Fylkiskonur sem sitja í 8. sætinu nálgast Selfoss og eru nú með 20 stig.
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir var markahæst Selfyssinga með 9 mörk, Steinunn Hansdóttir skoraði 4, Perla Rut Albertsdóttir og Kristrún Steinþórsdóttir 3 og þær Hulda Dís Þrastardóttir, Margrét Katrín Jónsdóttir, Thelma Sif Kristjánsdóttir, Adina Ghidoarca og Carmen Palamariu skoruðu 1 mark hver.
Næsti leikur Selfoss er gegn ÍR á heimavelli, á sunnudaginn kl. 14.