Sund - Kári Valgeirsson
Héraðsmót HSK í sundi var haldið í Hveragerði 31. maí sl. og mættu keppendur frá þremur félögum til leiks.
Selfoss vann stigakeppni félaga með 111 stig, Hamar varð í öðru með 59 stig og Dímon í þriðja með 24 stig.
Stigahæsti sundmaðurinn var Kári Valgeirsson Umf. Selfoss með 18 stig. Sigahæstu sundkonurnar voru þrjár, allar með 17 stig en það eru þær Selma Ína Magnúsdóttir, Sara Ægisdóttir og Elísabet Helga Halldórsdóttir allar úr Umf. Selfoss.
Besta afrek mótsins vann Kári Valgeirsson en hann hlaut 459 FINA stig fyrir 50 metra skriðsund sem hann synti á tímanum 30,75 sek.
Heildarúrslit eru á heimasíðu HSK.
HSK meistarar urðu:
50 metra flugsund
Thelma Ína Magnúsdóttir Selfossi 41,28
Guðjón Ernst Dagbjartsson Hamri 37,69
50 metra baksund
Elísabet Helga Halldórsd. Selfossi 48,50
Kári Valgeirsson Selfossi 39,50
50 metra bringusund
Ástríður Björk Sveinsd. Dímon 50,77
Konráð Karl Kristjánsson Hamri 81,77
50 metra skriðsund
Sara Ægisdóttir Selfossi 33,81
Kári Valgeirsson Selfossi 30,75
100 metra baksund
Thelma Ína Magnúsdóttir Selfossi 1:35,68
Guðjón Ernst Dagbjartsson Hamri 1:43,84
100 metra skriðsund
Elísabet Helga Halldórsd. Selfossi 1:24,98
Oliver Gabríle Figlarski Selfossi 1:22,75
200 metra fjórsund
Sara Ægisdóttir Selfossi 3:33,90
100 metra bringusund
Birgitta Ósk Hlöðversd. Selfossi 1:47,87
Kári Valgeirsson Selfossi 1:33,86
---
Stigahæsti sundmaðurinn var Kári Valgeirsson Umf. Selfossi, en hann vann einnig besta afrek mótsins.
Stigahæstu stelpurnar ásamt Magga Tryggva þjálfara Selfoss.
Ljósmyndir: Umf. Selfoss & Þóra Ósk