Borgunarbikarinn
Selfyssingar tryggðu sér sæti í fjóðungsúrslitum í Borgunarbikarkeppni karla í knattspyrnu eftir 4-3 sigur á Víðismönnum í framlengdum leik á JÁVERK-vellinum í gær.
Richard Sæþór Sigurðsson kom Selfyssingum í 2-0 og eftir að Víðismenn jöfnuðu kom Arnór Gauti Ragnarsson Selfyssingum í 3-2. Allt kom fyrir ekki og jöfnuðu gestirnir tryggðu sér framlengingu þar sem Andy Pew tryggði heimamönnum sigurinn með skallamarki eftir hornspyrnu á 104 mínútu.
Nánar er fjallað um leikinn á vef Sunnlenska.is.
Selfoss verður í pottinum þegar dregið verður í fjórðungsúrslit á mánudaginn.