Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir
Stelpurnar töpuðu stórt gegn ÍR-ingum þegar liðin mættust í Grill 66 deild kvenna í Hleðsluhöllinni í dag.
Leikurinn var jafn fyrstu mínútur leiksins og var staðan 4-4 eftir um átta mínútna leik. Síðan skildu að leiðir og við tók slæmur kafli Selfyssinga. Staðan varð fljótt 5-12 fyrir gestunum og voru hálfleikstölur 6-16. Seinni hálfleikur bauð ekki upp á mikla spennu og Selfoss sá aldrei til sólar. Lokatölur 16-31.
Mörk Selfoss: Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir 8/4, Agnes Sigurðardóttir 5, Rakel Guðjónsdóttir 1, Sólveig Ása Brynjarsdóttir 1, Katla Björg Ómarsdóttir 1.
Varin skot: Áslaug Ýr Bragadóttir 2 (13%) og Lena Ósk Jónsdóttir 2 (10%).
Næsti leikur hjá stelpunum er gegn HK U í Hleðsluhöllinni eftir viku, í þráðbeinni á SelfossTV.
Mynd: Elínborg Katla var markahæst í dag með átta mörk.
Umf. Selfoss / GK