Handboltaþrek
Í júlí verður haldið styrktar- og hreyfifærninámskeið fyrir krakka fædda 2004-2007 í Hleðsluhöllinni. Námskeiðið er opið öllum krökkum á þessum aldri.
Yfirþjálfari er Rúnar Hjálmarsson og honum til aðstoðar verður Sólveig Erla Oddsdóttir leikmaður Selfoss.
Á námskeiðinu mun Rúnar fara með krakkana í alhliða styrktar- og liðleikaþjálfun og vinna í fyrirbyggjandi styrktaræfingum. Einnig verður farið í grunnatriðin í ólympískum lyftingum, þar verður farið yfir tæknina og krökkunum kennd fyrstu skrefin. Sömuleiðis verður haldinn fyrirlestur um svefn og mataræði tengt æfingum og keppni.
Alls verða þetta 9 æfingar (2 klst.)
-
Dags: 8. júlí – 27. Júlí
-
Dagar: Mán, þri, lau
-
Tími: 16:00-18:00 (lau 10:00-12:00)
Fyrirlestur verður laugardaginn 20. júlí kl. 12-13:30 í Hleðsluhöllinni og eiga foreldrar/forráðamenn að mæta með iðkendum.
Námskeiðsgjald er 13.500 krónur og er skráning hjá Rúnari: runarhjalmarsson@gmail.com eða í síma 848-1947, fyrir kl. 23:00 þann 6.júlí.
Mynd: Rúnar og Sólveig Erla ætla að kynna krökkunum fyrir þreksalnum
Umf. Selfoss / ÁÞG