Sumar á Selfossi
Sumar á Selfossi hefst miðvikudaginn 7. ágúst með menningarlegum miðvikudegi en í framhaldinu er þétt dagskrá alveg fram á sunnudag. Selfyssingar eru hvattir til að taka virkan þátt í hátíðinni.
Hér fyrir neðan má skoða dagskrá Sumars á Selfossi í heild sinni en einnig eru tíundaðir sérstaklega dagskrárliðir sem félagar í Ungmennafélagi Selfoss taka beinan þátt í.
Dagskrá Sumars á Selfossi
Fjörugur fimmtudagur 8. ágúst
19:15 – 21:00 Selfoss – FH
Stórleikur í Pepsi deild kvenna í knattspyrnu þar sem Selfyssingar taka á móti FH á Selfossvelli. Þetta verður spennandi. Stuðningsmannaklúbburinn grillar hamborgara fyrir leik. Áfram Selfoss!
Flottur föstudagur 9. ágúst
14:00 – 18:30 Olísmótið
Drengir í 5. flokki etja kappi í knattspyrnu á Selfossvelli í Meistaradeild Olís.
Lifandi laugardagur 10. ágúst
9:00 – 19:00 Riðlakeppni Olísmótsins
Framtíðarlandsliðsmenn Íslands eigast við í Meistaradeild Olís á Selfossvelli
14:00 – 16:00 Júdókynning
Júdódeild Umf. Selfoss verður með opið hús í júdósalnum í gamla barnaskólanum við Bankaveg.
14:00-15:30 Dagskrá á Útisviði
Ísgerður úr Stundinni okkar er bráðskemmtileg stúlka sem hefur alltaf nóg að bauka. Ísgeður mun kynna fjölskyldudagskrána og syngja skemmtileg lög. Lalli töframaður stígur á stokk með töfra, grín og almenna vitleysu. Hvað ætli Lalli gralli núna? Ingó mun mæta á úti sviðið og hita upp fyrir kvöldið. Fimleikadeild Selfoss mun sýna meistaratakta.
Sællegur sunnudagur 11. ágúst
9:00 – 14:20 Riðlakeppni Olísmótsins
Framtíðarlandsliðsmenn Íslands eigast við í Meistaradeild Olís á Selfossvelli
14:30 Olísmóti lýkur
Mótsslit og verðlaunaafhending í Meistaradeild Olís á Selfossvelli
17:00 – 19:00 Selfoss – BÍ/Bolungarvík
Stórleikur í 1. deild karla í knattspyrnu þar sem Selfyssingar taka á móti Djúpmönnum á Selfossvelli. Leikur upp á líf og dauða. Stuðningsmannaklúbburinn grillar hamborgara fyrir leik. Áfram Selfoss!