Selfoss_merki_nytt
Sunddeild Umf. Selfoss óskar eftir að ráða sundþjálfara til starfa næsta vetur með möguleika á framtíðartarfi.
Starfið felst í þjálfun barna og unglinga ásamt yfirumsjón með öllum hópum. Önnur verkefni sem falla undir starfssvið þjálfara eru rafrænar skráningar iðkenda, skráningar á mót og skráning á árangri iðkenda.
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af sundþjálfun og/eða menntun á sviði íþróttafræða. Þekking á forritum frá Hy-tek
er æskileg. Viðkomandi verður að geta unnið með börnum og unglingum og verið þeim góð fyrirmynd.
Upplýsingar gefur Sigríður Runólfsdóttir formaður sunddeildar í síma 895 9716.
Umsóknir skulu sendast á sigrid@husa.is fyrir 6. ágúst 2013.