Knattspyrna - Hrvoje Tokic
Selfyssingar töpuðu fyrsta heimaleik sínum í 2. deild karla í knattspyrnu á laugardag þegar Njarðvík kom í heimsókn.
Hrvoje Tokic kom Selfyssingum yfir með góðu skallamarki á 28. mínútu en gestirnir náðu að jafna á 43. mínútu eftir langt innkast inn á vítateiginn. Sigurmark Njarðvíkur kom snemma í seinni hálfleik.
Nánar er fjallað um leikinn á vef Sunnlenska.is
Næsti leikur Selfyssinga er gegn Völsungi á JÁVERK-vellinum föstudaginn 3. júli kl. 19:15.
---
Ljósmynd: Umf. Selfoss