IMG_6559
Undankeppni Íslandsmótsins í hópfimleikum fer fram í kvöld 5.apríl klukkan 19:20 í íþróttahúsinu Ásgarði í Garðabæ. Búast má við hörkukeppni en keppt verður í karla, kvenna og blönduðum liðum og á Selfoss eitt lið í hverjum flokki. Búast má við fjölmenni á mótið frá öllum félögum en bílastæði verða þétt setin sökum þess að úrslitaleikur í Körfunni fara fram í sama húsi á sama tíma í kvöld.
Úrslit Íslandsmótsins fara svo fram 26. og 27.apríl í íþróttahúsinu við Versali í Kópavogi en sú keppni verður sýnd í beinni útsendingu á RUV.