Guðmunda Brynja
Selfyssingar gerðu annað jafntefli sitt í röð í Pepsi-deildinni þegar þær heimsóttu Þór/KA í seinustu viku.
Það var Guðmunda Brynja Óladóttir sem tryggði okkar stelpum jafntefli með glæsilegu skoti utan teigs þegar leiktíminn var að fjara út.
Nánar er fjallað um leikinn á vef Sunnlenska.is.
Þegar mótið er hálfnað er liðið í þriðja sæti deildarinnar með 17 stig.
Liðið tekur á móti Fylki í Pepsi-deildinni þriðjudaginn 14. júlí kl. 19.15 á JÁVERK-vellinum.
---
Guðmunda Brynja jafnaði fyrir Selfyssinga.