Á laugrdaginn 23. febrúar klukkan 13:30 leikur Selfoss við Gróttu í N1-deild kvenna. Grótta vann fyrri leik liðana naumlega 17-16 eftir að hafa verið yfir í hálfleik 11-7. Það er því von a hörku leik og mikilli skemmtun.
Grótta hefur á að spila hörkuliði sem hefur verið að spila örlítið undirvæntingum. Þær sitja 7 sæti deildarinnar með 15 stig. Þær hafa náð góðum úrslitum í seinustu leikjum eins og sigur á Stjörnunni í Garðabæ. Leikur liðsins snýst að flestu leiti um Sunnu Maríu Einarsdóttir sem hefur skorað 99 mörk í 17 leikjum. Næst markahæst í liðinu er Eva Björk Davíðsdóttir með 53 mörk í 17 leikjum. Þriðja markahæst er Tinna Laxdal Gautadóttir með 41 mörk í 15 leikjum. Í markinu hjá þeim hefur Elín Jóna Þorsteinsdóttir spilað flesta leiki eða 5. Hinsvegar hefur fyrrverandi landsliðsmarkvörðurinn Íris Björk Símonardóttir leikið 5 leiki fyrir liðið og gæti verið að hún spili á morgun. Annars verður Heiða Ingólfsdóttir í hópi hjá þeim.
Gengi Gróttu á tímabilinu: J-S-T-T-T-T-S-S-T-T-T-S-T-S-S-T-S
Selfoss situr í augnablikinu í 9 sæti deildarinnar. Stelpurnar eiga 3 mjög erfiða leiki eftir í deildinni. Grótta og Fram heima og Stjarnan á útivelli. Það er því ólíklegt að liðið komi sér yfir Hauka sem hafa 8 stig eins og Selfoss. Haukarnir eiga nefnilega eftir að leika við ÍBV, Aftureldingu og Fylki. Töluvert auðveldara prógram. Það má þó aldrei segja aldrei og sigur á morgun gæti hjálpað liðinu mikið. Stelpurnar meiga þó vera gífurlega sátttar með veturinn, af 3 nýliðum í deildinni þá eru þær vonandi að fara enda efstar af liðunum. Það er bara vonandi að seinustu leikirnir fari í reynslubankann eins og allt tímabilið. Markahæst í Selfoss liðinu er Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir með 81 mörk í 14 leikjum. Næst markahæst er Carmen Palamariu með 73 mörk í 16 leikjum. Þriðja markahæst er svo stórskyttan Kristrún Steinþórsdóttir með 52 mörk í 16 leikjum. Það eru svo þær stöllur Áslaug Ýr Bragadóttir og Ásdís Björg Ingvarsdóttir sem standa vaktina í markinu.
Gengi Selfoss á tímabilinu: S-T-T-T-T-S-T-T-T-T-T-S-T-T-T-S-T
Heimasíðan hvetur sem flesta til að fjölmenna á þennan leik og styðja stelpurnar í lokabaráttunni. Einnig verður á leiknum forsala á undanúrslitaleik mfl. karla Selfoss - ÍR í laugardalshöllinni 8 mars klukkan 17:15. Endilega nota tækifærið og fá sér miða og eiga frábæran tíma í Höllinni með Selfyssingum!
Áfram Selfoss!
N1 deild kvenna 2013
|
Meistaraflokkur |
Nr. |
Félag |
Leik |
U |
J |
T |
Mörk |
Nett |
Stig |
1. |
Valur |
17 |
16 |
0 |
1 |
558:347 |
211 |
32 |
2. |
Fram |
18 |
16 |
0 |
2 |
548:362 |
186 |
32 |
3. |
ÍBV |
17 |
12 |
1 |
4 |
452:367 |
85 |
25 |
4. |
Stjarnan |
18 |
11 |
0 |
7 |
492:434 |
58 |
22 |
5. |
HK |
17 |
10 |
1 |
6 |
420:424 |
-4 |
21 |
6. |
FH |
17 |
10 |
0 |
7 |
423:422 |
1 |
20 |
7. |
Grótta |
17 |
7 |
1 |
9 |
394:399 |
-5 |
15 |
8. |
Haukar |
17 |
4 |
0 |
13 |
382:457 |
-75 |
8 |
9. |
Selfoss |
17 |
4 |
0 |
13 |
358:439 |
-81 |
8 |
10. |
Afturelding |
18 |
2 |
1 |
15 |
339:508 |
-169 |
5 |
11. |
Fylkir |
17 |
1 |
0 |
16 |
297:504 |
-207 |
2 |
|