Frjálsar Grýlupottahlaup nr. 6 067
Grýlupottahlaup Selfoss 2016 hefst laugardaginn 16. apríl næstkomandi. Er þetta í 47. skipti sem hlaupið er haldið.
Grýlupottahlaupið er 850 metra langt. Skráning hefst kl. 10:30 í Tíbrá, félagsheimili Umf. Selfoss, á íþróttavellinum. Hlaupið hefst svo kl. 11:00.
Sex einstaklingar hlaupa saman og er ræst með hálfrar mínútu millibili. Þátttakendur eru á öllum aldri og er aðalatriðið að vera með.
Hlaupið fer fram sex laugardaga í röð. Fyrsta hlaupið er 16. apríl, síðan 23. apríl, 30. apríl, 7. maí, 14. maí og 21. maí. Verðlaunaafhending er síðan stefnt á að hafa laugardaginn 28. maí í Tíbrá kl. 11. Keppt er í öllum aldursflokkum karla og kvenna. Að loknum sex hlaupum er tekinn saman besti árangur samanlagt úr fjórum hlaupum og veitt verðlaun.
---
Það eru allir velkomnir í Grýlupottahlaupið á laugardag.
Ljósmyndir: Umf. Selfoss/GJ