5N0A6373
Bárbara Sól Gísladóttir, leikmaður Selfoss, var valin í lið ársins í Pepsi Max deild kvenna í knattspyrnu.
Leikmenn deildarinnar völdu bestu og efnilegustu leikmennina og lið ársins en úrslitin voru tilkynnt á lokahófi Pepsi Max deildanna
Bárbara Sól stóð sig vel í sumar, bæði í bakverði og á hægri kantinum en hún var valin í varnarlínuna í liði ársins.
Elín Metta Jensen úr Val var valin besti leikmaður deildarinnar og Hlín Eiríksdóttir úr Val efnilegust. Pétur Pétursson, þjálfari Vals, var valinn þjálfari ársins.
Lið ársins í Pepsi Max-deild kvenna:
Cecilía Rán Rúnarsdóttir, Fylkir
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir, Breiðablik
Ásta Eir Árnadóttir, Breiðablik
Natasha Moraa, Keflavík
Barbára Sól Gísladóttir, Selfoss
Katrín Ómarsdóttir, KR
Dóra María Lárusdóttir, Valur
Hildur Antonsdóttir, Breiðablik
Elín Metta Jensen, Valur
Berglind Björg Þorvaldsdóttir, Breiðablik
Hlín Eiríksdóttir, Valur