Brúarhlaup Frjálsíþróttadeildar Selfoss valið þriðja besta götuhlaup ársins 2024

Elvar Atli Hallsson stjórnarmaður Frjálsíþróttadeildar Selfoss tók við viðurkenningunni. Elvar Atli er lengst til vinstri á myndinni
Elvar Atli Hallsson stjórnarmaður Frjálsíþróttadeildar Selfoss tók við viðurkenningunni. Elvar Atli er lengst til vinstri á myndinni

Verðlaunaafhending fyrir hlaup ársins 2024 fór fram sunnudaginn 9.febrúar sl. Niðurstaða í einkunnagjöf hlaupara fyrir hlaup ársins 2024 er sú að Hleðsluhlaupið var valið Götuhlaup ársins 2024, í öðru sæti varð Hlaupasería 66°N og hlaupahóps FH og í þriðja sæti var Brúarhlaup Selfoss.

Við einkunnagjöf á hlaupum ársins gefa hlauparar tvennslags einkunnir. Annars vegar einkunnir fyrir hina ýmsu þætti hlaupsins og með því að reikna saman þessa þætti fæst "Útreiknuð einkunn". Hlauparar gefa svo eina heildareinkunn "Gefin einkunn" sem byggir á hans mati fyrir hlaupinu í heild sinni. Til að fá út lokaniðurstöðu um hlaup ársins eru þessar tvær einkunnir sameinaðar og fengin út ein heildareinkunn sem ræður endanlegri röð hlaupanna í valinu um hlaup ársins 2024. Til að eiga möguleika á að komast á þennan lista í ár eins og áður þarf hlaupið að fá einkunnagjöf frá að minnsta kosti 10 hlaupurum.

Götuhlaup ársins 2024

Röð Hlaup Einkunn
1 Hleðsluhlaupið 4,78
2 Hlaupasería 66°N og Hlaupahóps FH 4,74
3 Brúarhlaupið á Selfossi 4,56

 

Frjálsíþróttadeild Selfoss vill þakka öllum þeim fjölmörgu hlaupurum sem tóku þátt í hlaupinu, án þeirra og allra sjálfboðaliðanna sem koma að hlaupinu væri þetta ekki gerlegt.  Bestu þakkir til allra

Stjórn Frjálsíþróttadeildar Selfoss