Dregið í 16-liða úrslit

Í gær var dregið í 16-liða úrslit Poweradebikarsins, bæði í karla og kvennaflokki.  Þar áttu Selfyssingar fulltrúa í báðum skálum, þó hafa karlarnir ekki leikið leik sinn í 32-liða úrslitum.

Strákarnir eiga leik við ÍH í 32-liða úrslitum, en hann fer fram í Kaplakrika föstudagskvöldið 1. nóvember kl 20.00.  Komist þeir í gegnum það verkefni þá bíður þeirra ekki minna verkefni, en Selfoss mun þá taka á móti hinu liðinu frá Kaplakrika, Íslandsmeisturum FH, í Set höllinni.  Miðað er við að 16-liða úrslit fari fram sunnudaginn 17. nóvember.

Stelpurnar upplifðu dejavoo í gær, en annað árið í röð taka þær á móti Fram í Set höllinni í eina Olísdeildarslag 16-liða úrslitanna.  Miðað er við að leikir 16-liða úrslita fari fram 4. eða 5. nóvember.  Nákvæm tímasetning mun verða kynnt á samfélagsmiðlum Selfoss handbolta þegar nær dregur.  Hér að neðan má sjá dráttinn í heild sinni.

 

16-liða úrslit Poweradebikars kvenna

  • Selfoss – Fram
  • Víkingur – Fjölnir
  • HK – ÍBV
  • KA/Þór – Stjarnan
  • FH – Grótta
  • Afturelding – ÍR

 

16-liða úrslit Poweradebikars karla

  • ÍH eða Selfoss – FH
  • Hvíti Riddarinn eða Víkingur – Fram
  • Haukar – ÍBV
  • HK – Afturelding
  • Valur – Grótta
  • ÍBV 2 eða Þór – ÍR
  • Víðir eða Hörður – KA
  • Stjarnan – Fjölnir