Foreldrafundur fimleikadeildarinnar

Mánudaginn 30. september var stóri foreldrafundurinn okkar.
Þangað er öllum foreldrum sem eiga iðkanda í deildinni boðið og yfirþjálfari, deildarstjóri og framkvæmdarstjóri fara yfir helstu atriði fimleikastarfsins.

Eftir örstutt erindi frá þeim var Þorgrímur Þráinsson með erindið "Við erum öll einstök" sem hann hafði aðlagað að okkar starfi. Gott erindi sem hitti vel í mark og þökkum við Þorgrími kærlega fyrir komuma.